Halldóra:)
Klukkan
06.03.2008 15:38:56 / halldoram

Bloggleysið fer að lagast!


Ég fer að koma með blogg hérna, netið mitt er bara í fokki núna og þetta net ekki sem best, þannig ég ætla ekki að eyða tíma í að blogga og vanda mig við það ef ég veit að það getur allt í einu bara dottið út, einsog er búið að gerast núna 2x bara við þetta litla blogg sem ég er að gera núna :$ Þið getið bara beðið áfram spennt yfir nýju og skemmtilegu bloggi hér úr 3216, sem kemur vonandi fljótlega þegar ég nenni að ná í Simma niður og fá hjálp. en ég er farin uppí fjall á bretti 8)


HalldóraM

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 02:12:21 / halldoram

komin til ak

 

14.Jan | Til hamingju með afmælið Egill! J
17.Jan | Til hamingju með afmælið Elvar, Sylvía og Emelía ;*
18.Jan | Til hamingju með afmælið Etna mín ;*

  

Voða mikið að frétta en aldrei man ég neitt þegar ég loksins ætla að blogga!
Skólinn byrjaður og ég loksins flutt á ak aftur sem er bara best. Flutti niður um 3 hæðir, er semsagt komin í 3216 , með henni Guðrúnu minni;* Það er bara ótrúlega gott að vera hérna, allir vinir mínir nánast á 3 hæð sem er frábært.
Guðrún fór svo í hálskirtlatöku í gær, og er alveg að drepast greyið! Ég lenti svo í því að fá strepptakokka, var alveg að dreepast og komst ekkert í skólann í 3 daga eða svo, svo mikil bólga í hálsinum að ég náði rétt svo að anda,  þannig við láum saman hérna rúmliggjandi, alveg ótrúlega flottar;p En ég var þá bara á ak, ætlaði semsagt suður með Elvari, en neii þurfti að beila á það! ;/

 

 

Í gær kíkti ég á rúntinn sem held ég hefur sjaldan verið svona skemmtilegur haha! Semsagt, byrjaði með Heiðu bara rólegar, svo kom Ásgeir til okkar því Elvar henti honum víst út ;p og Ásgeir var svo fullur að þetta var baraa óendanlega fyndið, svo gaman hvað það er hægt að rugla endalaust í þessu greyi þegar hann er í glasi. Svo fór hann og Steini kom til okkar, hann btw fór á kostum! Söng voða fallega og endaði svo með því að ég þurfti að drífa mig að skutla honum heim því hann var orðin það hellaður að hann dreif sig heim og byrjaði á því að æla í rúmið sitt, sem var vel gert. ;) Svo rúúústaði ég Elvari í spyrnu! Hann var á miklu betri bíl en ég , reyndar ekkert voða erfitt að toppa minn bíl , glæsi kerra samt. En ég þurfti nánast að splæsa á tissjú pakka á hann því hann varð svo sár! :D Hann vildi aðra , og að sjálfsögðu vann ég hana líka, segið svo að ég kunni þetta ekki (H) En svo heim að horfá friends með Dóra og Guddu, já ég er farin að horfá friends, kominn tími til!

 

 

Var svo að koma inn núna bara af rúntinum , fór með Palla út að prófa bílinn hans, auðvitað reddaði ég því og við fengum okkur bara pizzu og rakel og kalli með og svo bara heim að skipta um bíl og ég , rakel og stebbi á rúntinn! J Hitti Brodda og Hauk sem var fínt , svo heim bara , frekar þreytt e-ð .

 

Ætla svo að kíkja á Húsavík á morgun til að slappa smá af baraa.. Og svo með mfl á egilsstaði á sunnudagsmorgunin , niice. En þetta er gott í bili og voða óspennandi blogg, en vil fá komment saamt ;$

 

 

Halldóra:*

   

» 10 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 20:18:59 / halldoram

Bílpróf;$

 

komin með bílpróf ;D

 

 

                                                             vildi bara deila því! ;p


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 20:05:07 / halldoram

17.ára


Ég er loksins orðin 17 ára! semsagt 14.des mér fannst hann bara frekar leiðinlegur dagur btw. Fór í próf kl 8:15 sem gekk frekar vel bara, bóklegt blak sjáðu til (y) .. Svo dreif ég mig uppá vist og tók allt til og brunaði til Húsavíkur með Árna til að taka bóklega bílprófið, það gekk ekki nógu vel, féll með fkn 1 villu! :cry: En það þýðir ekki að gráta björn bónda! Tek örugglega prófið aftur í næstu viku. Svo var bara farið að sofa og vaknaði og fór út, og gerði nánast ekkert nema rúntur með Erling og stelponum og kíkti á ball og rúntað meir, skemmtilegur dagur:S

En á laugardaginn var voða nice, kíkti á kaffi niðrí bæ með pabba og heiðrúnu, fórum svo að kaupa jólatré. Stelpurnar komu svo til mín um hálf 10 leitið og við átum bara helling og horfðum á the wiggle wiggle song , drullugott lag! svo bara spjall og svo komu Dóri, Ármann og Siggi upp til okkar og við fórum að spila Trivial sem við stelpurnar rústuðum ekki rétt?:$
Spilað til hálf 4 og fólk fór þá heim og ég sofnaði hálf 7 ? 

Fór í fjölskylduferð í dag, til Mývatnssveitar, það var hrikalega nice og gaman, fórum í jólasveinalandið Dimmuborgir og þar hittum við jólasveinana, og þeir vildu endilega fá mynd af sér með okkur og ætluðu svo að senda okkur í jólakort haha! En það var ágætt , tókum fullt af myndum þarna, svo flottur staður. En svo fórum við í jólaland að skoða jóladót, og svo bara vogafjós, það er sko kaffihús með glugga sem maður sér beljurnar og sér þegar það er verið að mjólka þær , voða kósý e-ð ?:$ En allavega var þetta ógeðslegur matur sem ég fékk mér. En komum svo við í sveitnni, það er alltaf svo gott að koma til ömmu og afa;*

Fékk fullt af afmælisgjöfum, Shampo, djúpnæringu, Nýja Puma ilmvatnið og body lotion og sturtu sápu með því, pening, bol, buxur, sokka, armband, agalega flottann myndaramma, annað krem og sturtusápu, Puma ilmvatn síðan í fyrra, og vettlinga!:) Takk fyrir þetta ;*

En ég náði öllum prófunum nema fkn enskunni, sem ég ætla ekki að ná! Mér er ekki ætla að læra ensku í þessum skóla:( En allavega þá voru einkanirnar svona..

Enska 202 - 3
Íslenska 212 - 5
Jóga 411 - 9
Íþróttafræði 102 - 8
Íþróttagrein 122 - 9
Skyndihjálp 101 - 5
Næringafræði 113 - 5
Íþróttastrafsþjálfun - 7


svo á ég eftir að fá úr Íþróttagrein 152 sem er blakið!:) Ég er alveg þokkalega sátt með þetta.
En komið gott í bili :)

- set inn myndir úr dimmuborgum hérna við hliðina! (:


 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 18:03:59 / halldoram

Árshátíð ..

Lag: Let me think about it - Fedde Le Grant, óendanlega gott lag:o

Svo vil ég óska Mömmu, Andra og Berglindi til hamingju með daginn!:)

Jæjja. Nú er Árshátíðarballið búið hjá MA, sem var svona sæmilegt:) .. GusGus var ekki að gera góða hluti fannst flestum, hættu alltof snemma og já vorum ekki alveg að fýla þetta. En ágætt samt;) Uppi var svo dansað gömlu dansana sem var snilld haha, ég og Guðrún vorum að redda þessu, segjum að við höfum ekki kunnað þett aaalveg! ..Dj- man ekki kom svo og var að spila eftir gömlu dansana og ég get sagt það að það var skemmtilegra að dansa þar heldur en niðrí sal. Allavega fórum ég, Aldís og Auður að dansa þar og Hrund kom svo með okkur og það var bara ógeðslega gaman:) Eftir ballið fórum við bara í strax að éta og svo rúnta, rúntuðum til 5 leitið og ég fór þá bara heim og sofnaði um hálf 7 :D Ágætt kvöld !

En meira hefur gerst frá því síðast. Skólinn búinn , váá hvað hann leið hratt, bara próf eftir, þessi önn var svo óendanlega skemmtileg! Langar ekkert að fara heiim. en svo er bílprófið alveg að fara að koma líka 8) .. Flyt heim aftur 14.des, á afmælisdagiiinn.
Það var svo lítið blakmót hjá okkur í ÍÞG sem var hriikalega gaman haha, það er svo gaman í blaki, djii ..en allavega þá vann mitt lið og erum við núna Blakmeistarar 2007 takk fyrir ;D

Kata ástin mín kom svo til Íslands frá dk á miðvikudaginn, sem var svoo gaman ;D Hef ekki séð hana síðan í Maí :o .. Fórum bara rölt um vistina og rúnt og e-ð og höfðum það niice:)

Fékk vinnu í pósthúsinu, þannig það verður stemmari hjá okkur Dagný og Guðrúnu að bera út og flokka póst í jólafríinu =) eða meira svona , þær láta mig gera allt leiðinlegt því ég er ný!:S

Ég er svo orðin ein í herbergi :D .. Svala flytur til systur sinnar eftir áramót, en er farin heim núna þannig ég veit ekki hvort ég verði ein eftir áramóta eða fái einhvern nýjann félaga.. Ætla allavega að fara af 6 hæðinni, illa pirrandi að þurfa alltaf að fara uppá 6 hæð útí enda!

Allir í laufabrauði núna hérna heima, nema ég sit bara í tölvunni og hlusta á jólalög! Er búin að skera alveg eina heila takk fyrir, og það er bara nó í bilii :)

En þetta blogg er orðin soltil kássa, þannig best að stoppa bara hér og enda þetta blogg!





» 9 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 17:19:45 / halldoram

jahéroghér.

Lag: Betra Líf - Páll Óskar  .. Já ég og Guðrún Eyja erum búnar að nauðga þessu lægi hægri vinstri alla vikunaSvalur

En ég hafði mig loksins í það að blogga, held það sé ekki alveg að virka hjá mér að vera með bloggsíðu skoh!Óákveðinn

En allavega þá hefur margt gerst frá því síðast! Of mikið held ég til að blogga um:P 2 vikur eftir af skólanum, sem er alltof stutt;p En það þýðir að það er stutt í bílprófið, eef ég ætla mér að taka það á réttum tíma;P er ekki alveg að redda því að fara í bóklega..

Laugamótið var í gær sem var sjúklega gaman!:D.. Völsungur endaði í 1 og 3 sæti, ég var í liðinu sem endaði í 3 sæti;p .. hamragellurnar lentu í 2 :) .. það er bara alltof gaman að spila svona battabolta;p

Svala krúttí lenti svo í bílslysi seinustu helgi hérna á húsavík;/ .. Hún er ekki alveg orðin góð ennþá, alltaf e-ð að drepast greyjið, meina að geta ekkert borðað er bara smá plús sko ;p hah

Ég, Aldís og Reynir fórum svo að fljúa!;D það var geðveikt utan við ógleðina sem ég fékk, hélt ég væri að deyja, hef aldrei fengið svona flugveiki áður;p .. En svo fórum við bara heim og á vistina og Reynir kom svo og ég og aldís að græja okkur og svo drifum við okkur á Ljótu Hálfvitana sem var snilld ;D svo rúntur og heim að sofa.

Hlíðarfjall á svo að opna í dag, og ég ætla svo pottþétt að taka brettið með mér til Ak á morgun, get ekki beðið eftir að komast uppí fjall!!  .. einhver game í næstu viku?Hlæjandi

Svo er ég að spá í að drífa mig á æfingu með Andreu hjá Þór/KA, sjá svona hvernig þetta er hjá þeim, annars er það bara hamrarnir , eða jafnvel bara körubolti? Hvað er það ?

Ég, Guðrún og Reynir fórum svo til ak einn laugardaginn á djammið, hittum Aldísi og fleira fólk og mér fannst það sjúklega gaman, fórum á sveitaball í Freyvangi sem var já svona sæmii ;p hittum Hrund, Orra og Andra sem reddaði þessu;D Ég og Aldís fórum svo á Kaffi Ak og misstum okkur þar að dansa , en fórum svo bara að rúnta með Reyni og Guddu, keyrðum svo heim til Húsavíkur um hálf 7 , mættum þá Palla elskunni oní skurði, hann semsagt sofnaði undir stýri og var bara fastur þarna oní, en hann reddaðist heim og slasaðist ekkert :)

En vá hvað þetta er tilgangslaust blogg, 3 tilraunin á þessu blessaða bloggi!! Enda þetta bara með gáfulegum myndum8)
 
       







                     
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                Halldóra:) 

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 15:32:04 / halldoram

Reykjavík.

Lag: Aldrei Séns - The Sebastians ft Silja og Hildur :!: 

kannski kominn tími á blogg ? Eða hvað ?

Ég ekki alveg að standa mig í þessu bloggstandi einsog ég ætlaði nú að vera dugleg!:$ .. Það er bara nó annað að gera!

En ég er allavega komin með Nýjan herbergisfélaga sem er stórfurðulegur og Heitir Svala Hrönn:| Einhver hálviti úr sveitinni:$
nei svala mín þú ert ágæt haha ;D

Svala elskan orðin 17 ára , Til hamingju með það ástin ;*
Við drifum okkur í Ö2 í seinustu viku , Förum örugglega báðar í bóklega 12.okt , Vonandi að maður nái því , Ö2 verkefnið var nú ekki uppá marga fiska haha!!

En ég skrapp til rvk um helgina með Aldísi og Grétari, það var bara fín ferð :) Gisti hjá Dagný og það var voða kósý í nýja húsinu þeirra 8) En smá brot úr suðurferðinni!

Við byrjuðum á því að keyra suður og Ísak fékk far með okkur, komum til rvk um 8 en ég fann ekki húsið hennar dagnýjar fyrr en um 9 hah..
fór til hennar og fengum okkur að borða smá og svo bara græja sig og í keilu með Gylfa, Aldísi og Grétari;) .. Það var bara fjöör sko , 3 sæti í báðum leikjunum ekki slæmt;p Eftir það fórum við Dagný að rúnta aðeins , eða meira svona villast og reyndum að finna svo Önnu í Hafnarfirði sem tókst svo kl hálf 2 haha ;D rúntuðum með henni og fórum svo bara heim að sofa , eða þegar við fundum húsið okkar

Laugardagurinn var bara fínn , Vöknuðum hálf 2 og fórum á HK - Valur. Það var sjúklega gaman , Hittum Rögnu og Elfar og hana Mjöll mína sem var æði :* .. Valur vann að sjálfsögðu 1-0 og var þá voða fjör . Fórum svo bara heim að græja sig meira og í kringluna :)

Fórum svo út að borða með Önnu á Pizza Hut , rúntur, laugarvegurinn og Aldís og Gylfi komu svo með okkur í smá stund :) svo bara heiim að sofa.

Vaknaði með ælupest á sunnudagsmorguninn, Keyrðum svo til Njarðvíkur og kíktum til Ölmu og Fannars :D það var voða kósý allt þarna hjá þeim og skemmtilegt! =) Alma búin að fá sér svona líka sjúklega sætann kettling , sjæse;o .. Hann Frans :D
En við keyrðum svo bara heim til rvk aftur því ég var að fara norður aftur :/
Aldís, Grétar og Þorri sóttu mig svo um hálf 7 leitið og bara brunað úr borginni. Allir voða hressir og þvílíkt fjör á leiðinni heim :D Stoppuðum svo í staðarskála með pínu látum :o .. bíllinn bremsaði ekki og við runnum bara áfram og nánast beint á staðarskála skilltið ;S en Aldís svo góður bílstjóri að hún náði að beygja frá og stoppa á endanum og vá þvílíkt sjokk ! En keyrðum svo bara áfram og stoppuðum á Blöndósi og létum Þorra blása , því hann var búinn að drekka aðeins á leiðinni , en það var svo mikil þoka að Aldís þorði ekki að keyra og enginn annar en Þorri með bílpróf , og Löggan var þvílíkur húmoristi haha, rakkaði okkur aldísi niður í skítiinn, en Þorri mátti keyra þannig við héldum bara áfram og hringdum í varmahlíð því við vorum svo svöng og buið að loka, en kallinn var svo elskulegur að hleypa okkur inn og fengum okkur brauð og kökur og fleira, en svo keyrðum við bara heim og komum um 12 leitið ;D .. Svaka fjör með Bugsy Malone og Nylon og Ávaxtakörfuna á leiðinni haha! geggjuð stemning í bílnum ;p

En besta af þessari ferð var hvað við rötuðum EKKERT haha!!
En takk fyrir helgina fólks ;*

Komið gott í bili, reyni að hafa styttri tíma í næsta blogg haha! bleller ;*

Halldóra

- Set myndir inn fljótlega fra þessari ferð =)


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 21:09:45 / halldoram

Lífið á Ak:o

halló halló!
Ætla að prófa eina ferðina enn að blogga, var búin að blogga hrikalega langt blogg og þá datt netið út! Var semsagt á vistinni og þar er ekkert besta net i heimi;p

En allavega.. Ég bý núna á vistinni með henni Edith og það er sjúklega gaman að búa þarna, maður er e-ð svo frjáls8) .. Ef þú vilt koma i heimsókn þá kemuru á efstu hæðina útí enda! gat ekki verið lengra í herbergið okkar haha, semsagt 6216 eða Friðbjarnarhús einsog það heitir!:D

Það er annars ekki mikið að frétta, fékk mjög góða stundatöflu, er í fullt af tímum sem er bara hreyfing og ræktin og svo er ég í 3 bóklegum tímum!:)

Og helvíti hafi það þá töpuðum við seinni úrslitaleiknum okkar á móti Aftureldingu hvort við myndum spila í úrvalsdeildinni næsta sumar, en við erum búnar að standa okkur mjög vel í sumar og var þetta okkar fyrsta tap, þannig við ættum að vera sáttar og vinna bara aftur næsta sumar!8)

En ætla að nefna góða punkta af því sem hefur gerst þessa daga hérna á ak, eða það sem ég man:o

* Svala kveikti nánast í vistinni, var að poppa og gleymdi sér og allt í einu fylltist herbergið af reik og brunakerfið fór í gang og allt kreisí!;)

* Kristjana lætur ekkert sjá sig, voða upptekin að höstla!:$

* Ég líka bjó mína fyrstu daga bara niðri hjá kristjönu og Svölu, það var alveg ágætt!

* Akureyrarvakan , hún var mjög skemmtileg bara, öflugt atriðið frá frúin í Hamborg:S

* Ég ákvað að gerast dugleg og er byrjuð að fara í ræktina!:lol:

En svo ákvað ég að vera á akureyri í gær, og tókum ágætt djamm! Við Rakel byrjuðum að rúnta með Ársæl, Ingibjörgu og Brynju.. það var mjög gaman bara, fórum svo heim til palla og náðum i smá áfengi og vorum hjá honum í smá og störtuðum drykkjuna;p Palli hringdi svo í leigubíl og við heim til Ása.. drukkum meira og ég og Rakel fórum svo með Ársæl og Heru að rúnta. Fórum svo til Hinriks og Arons og þar var e-ð fólk sem ég þekki ekkert:D og vorum þar e-ð og fórum svo niðrí bæ og ég fór svo í sjallann með Herdísi því rakel komst ekki inn hehe, var með Birnu Bolla e-ð að dansa einsog asni og Herdísi jú líka. Þetta var bara ógeðslega skemmtilegt kvöld og komið gott í bili í blogginu. Orðin svoltil mikil kássa:p

 Halldóra;*

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 21:07:02 / halldoram

Testa þetta aðeins!

Ég er í svo miklu blogg stuði! Ákvað bara að reyna á að gera síðu eina ferðina enn!:P
..ætla að reyna að halda henni uppi þó ég hafi ekki mikinn tíma, skóli og margt annað:p

eða allavega að reyna að halda henni i haust segja frá lífi mínu á aak!:)

                                              
                                                                                   
 Halldóra!

» 6 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
10. febrúar 2012
RSS tengill